Auglýsing

Strákarnir í Kaleo tóku á móti silfur, gull og platínu plötum

Nú á dögunum fögnuðu drengirnir í Kaleo velgengni plötunnar A/B, sem kom út árið 2016, en hún hefur selst afar vel út um allan heim eða í 1.500.000 eintökum. Platan hefur einnig fengið gríðarlega góðar viðtökur á streymisveitum eins og Spotify en um 4.500.000 hlusta á sveitina í hverjum mánuði.

Jökull, Davíð, Daníel og Rubin tóku við silfur, gull og platínu plötum og eins og sjá má á myndinni hér að ofan eru drengirnir bæði stoltir og glaðir.

Kaleo menn hafa verið sveittir við að semja nýja plötu og er hún að sögn Jökuls tilbúin og kemur út næsta vor. Aðdáendur sveitarinnar bíða óþreyjufullir eftir plötunni og er stórt ár í vændum hjá strákunum

Auglýsing

læk

Auglýsing
Auglýsing

Fréttir

Auglýsing