Það var tippari sem er stuðningskona Sindra á Höfn í Hornarfirði sem var með alla leikina 13 rétta á Miðvikudagsseðlinum í getraunum í gær. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Íslenskri getspá.
Alls fær hún 1.7 milljónir króna í sinn hlut. Hún tippaði á kerfi þar sem hún festi 5 leiki með einu merki og gekk kerfið fullkomlega upp að þessu sinni.