Nú eru 6 pör eftir í Love Island og fer lokaþátturinn í loftið mánudaginn 23. ágúst.
Í þessum lokaþætti sjöundu þáttaraðar fáum við að sjá hvaða par fer með sigur úr býtum og fá að launum 50 þúsund pund, eða tæpar 9 milljónir íslenskra króna.
Samkvæmt getspám er það þau Millie Court og Liam Reardon sem þykja sigurstranglegust en fast á hæla þeirr fylgja þau Toby Aromolaran og Chloe Burrows.