SVEFN ráðstefnan verður haldin 19. október n.k. í Eldborgarsal Hörpu þar sem farið verður ítarlega yfir mikilvægi svefns fyrir einstaklinginn, fyrirtæki og samfélagið í heild. Aðalfyrirlesari ráðstefnunnar er dr. Matthew Walker sem slegið hefur í gegn um heim allan með bók sinni Why we sleep – mögnuð bók sem hefur opnað augu almennings fyrir mikilvægi svefns í tengslum við heilsu, vellíðan og árangur. Matthew Walker er prófessor við Harvard háskóla og sérfræðingur í svefni, sálfræði og taugalífeðlisfræði. Hann er virtur vísindamaður á þessu sviði og hefur birt fjölmargar ritrýndar vísindagreinar.
Er svefn vandi fyrirtækja?
Svefnvandi er eitt stærsta og dýrasta vandamál fyrirtækja í dag. Samkvæmt nýjustu könnunum segist helmingur Íslendinga ekki sofa nóg og 34% sofa undir sex klukkustundum en svo stuttur svefn eykur líkur á margvíslegum andlegum og líkamlegum sjúkdómum, dregur úr framleiðni og eykur slysahættu.
Ef kostnaður íslensks samfélags af skertum svefni landsmanna er svipaður og í Bandaríkjunum má áætla að hann sé um 55 milljarðar króna árlega.Rannsóknir sýna að svefnleysi meðal starfsmanna hafi m.a. eftirfarandi áhrif:
- Fjarvistir og minnkuð framleiðni sem jafngilda 7-11 daga fjarvistum á starfsmann á ári.
- Svefnlausir starfsmenn eru allt að 70% líklegri til að gera mistök og lenda í slysum.
- Aukin hætta á kvíða, þunglyndi, sykursýki, hjarta- og æðasjúkdómum ásamt neikvæðum áhrifum á lífslíkur.
Samstarfsaðilar SVEFN ráðstefnunnar eru Landsbankinn, Lyfja, VÍS og Betra bak.