Sycamore Tree heldur tónleika í Fríkirkjunni 21.febrúar. Tónleikarnir verða þeir glæsilegustu og með þeim Ágústu Evu og Gunna Hilmars verður 7 manna sveit.
Þau er byrjuð að senda frá sér efni af sinni næstu breiðskífu sinni sem kemur út 2020 en lagið FIRE var eitt af vinsælustu lögum á árinu 2019 og ómar enn á öldum ljósvakans. Sycamore Tree hélt einmitt margrómaða tónleika á sama stað á Iceland Airwaves í nóvember og vilja þau endurtaka leikinn á þessum magnaða tónleikastað þar sem galdrar og draumkenndi heimur þeirra passar afar vel við salinn.
Tónleikarnir hefjast kl 20.30. Miðaverð er 3.900. Miðasala er á tix.is