Parið Eiríkur Hilmarsson og Marólína Fanney Friðfinnsdóttir gerðu sína eigin útgáfu af myndbandinu við lagið Volcano Man.
Í myndbandinu, sem er keimlíkt því upprunalega, feta þau í fótspor Will Ferrell og Rachel McAdams þar sem þau syngja meðal annars í Reynisfjöru. Upprunalega myndbandið gaf Netflix út í tengslum við Will Ferrell kvikmyndina Eurovision Song Contest: The Story of Fire Saga.