Enginn var með allar Lottótölurnar réttar í útdrætti vikunnar og verður potturinn því þrefaldur í næstu viku. Þrír heppnir miðahafar voru með bónusvinninginn og fær hver rúmar 172 þúsund krónur. Einn miðinn var í áskrift, einn á Lotto.is og einn í Lotto-appinu.
Átta voru með fjórar réttar tölur í Jókernum og hlýtur hver þeirra 100 þúsund krónur í vinning. Miðarnir voru keyptir í Hagkaup, Akureyri, Happahúsinu, Kringlunni, Reykjavík, fimm voru í áskrift og einn á Lotto.is