Einn heppinn miðahafi í Wiesbaden í Þýskalandi hreppti 2. vinninginn í EuroJackpot í gærkvöldi, föstudaginn langa, og fær rúmlega 321 milljón króna í vinning. Átta miðahafar skipta svo með sér 3. vinning og fá rúmlega 14,1 milljónir hver en miðarnir voru keyptir í Danmörku, Hollandi, þrír í Finnlandi og tveir í Þýskalandi, Koblenz annars vegar og Münster hins vegar. Enginn var með 1. vinning og stefnir því í 7,1 milljón króna pott í næstu viku.
Þrír miðahafar voru með fjórar réttar tölur í réttri röð og hljóta 2. vinninginn í Jóker. Miðahafarnir fá 100 þúsund krónur hver en einn miðana var keyptur á lotto.is, annar í Lottó appinu og sá þriðji er í áskrift.