Fyrsti vinnningur gekk ekki út að þessu sinni í Víkingalottó, en einn miðahafi var með 2. vinning og fær hann í sinn hlut rúmlega 348 milljónir króna. Miðinn góði var keyptur í Finnlandi.
Þrír skiptu með sér hinum al-íslenska 3.vinningi og fær hver þeirra rúmlega 1,4 milljón. Tveir miðanna eru í áskrift og einn var keyptur í N1 v/Borgartún í Reykjavík.
Sex voru með fjórar réttar tölur í réttri röð í Jókernum og hlýtur hver þeirra 100 þúsund krónur í vinning. Þrír miðanna voru keyptir á lotto.is og hinir í Olís, Ánanaustum í Reykjavík, Olís á Siglufirði og í Prinsinum, Þönglabakka 6 í Reykjavík.