Tíu manna samkomutakmörkun mun taka gildi innanlands á miðnætti og gilda til 2. febrúar.
Þá verður skemmtistöðum, sem eru ekki veitingastaðir, lokað og viðburðir með hraðprófum ekki leyfilegir.
Sundlaugar og líkamsræktarstöðvar verða enn opnar og miðast við 50% af leyfilegum hámarksfjölda.