Brotist var inn í tölvukerfi HS orku fyrr í sumar og svikin út greiðsla sem nemur á fjórða hundrað miljóna. En þetta kom frá á vef Fréttablaðsins nú í morgun.
Unnið er nú með íslenskum og erlendum lögregluyfirvöldum að endurheimt fjármunanna. Væntingar eru um að endurheimta fjárhæðina að miklum hluta en helmingur HS Orku er í eigu íslenskra lífeyrissjóða.
Í skriflegu svari til Fréttablaðsins staðfestir HS Orka atvikið og segir meðal annars þetta:
„Fyrir snörp viðbrögð bæði starfsmanna félagsins og lögregluyfirvalda hefur félagið ástæðu til að ætla að stóran hluta fjárhæðarinnar megi endurheimta og líklega geti það dregið umtalsvert úr afleiðingum glæpsins,“ segir í svarinu. Þá muni málið engin áhrif hafa á viðskiptavini, rekstur eða sambönd við birgja félagsins.
Einnig er þar tekið fram að málið muni engin áhrif hafa á viðskiptavini eða rekstur fyrirtækisins.