Donald Trump Bandaríkjaforseti virðist hæðast að hinni 16 ára gömlu Gretu Thunberg í Twitter færslu sinni.
Tíst forsetans kom seint í gærkvöldi, eftir að Thunberg talaði fyrir fullum sal heimsleiðtoga á loftslagsráðstefnu Sameinuðu þjóðanna í gær. En Donald sem var viðstaddur ráðstefnuna gekk framhjá henni án þess að virða hana viðlits og fékk hann stingandi augnaráð frá Thunberg.
Í tísti sínu skrifar hann þetta:
„Hún virðist mjög hamingjusöm ung stúlka sem hlakkar til bjartrar og yndislegrar framtíðar. En yndislegt að sjá!“
Fólk hefur sent Bandaríkjaforseta kaldar kveðjur á samfélagsmiðlum fyrir tíst hans, þar sem hann sendir Thunberg þessi kaldhæðnis orð.
She seems like a very happy young girl looking forward to a bright and wonderful future. So nice to see! https://t.co/1tQG6QcVKO
— Donald J. Trump (@realDonaldTrump) September 24, 2019