Flytja þurfti tvo á slysadeild eftir bílveltu í dag. Óhappið varð á mislægum gatnamótum Miklubrautar og Sæbrautar um klukkan fjögur. Þetta kemur fram á vef vísis
Lögregla þurfti að loka akreininni einhverja stund en bíllinn valt efst í fráreininni frá sæbraut upp á Miklubraut. Sköpuðust nokkrar umferðartafir vegna þessa.
Ökumaður og farþegi komust út af sjálfsdáðum, samkvæmt upplýsingum frá slökkviliði höfuðborgarsvæðisins, og virtust meiðsl þeirra vera óveruleg.