Auglýsing

Tveir á slysadeild eftir harðan árekstur á Reykjanesbraut

Rétt um klukkan 12:30 í dag varð umferðaróhapp á Reykjanesbraut þegar flutningabíl var ekið aftan á vegamerkingabíl sem var að störfum nærri Fitjum. Ökumenn beggja bílanna voru fluttir á slysadeild.

Þetta kemur fram í tilkynningu Vegagerðarinnar.

Unnið er að hreinsun vegarins. Ekki er ljóst hvenær hægt verður að opna Reykjanesbrautina að nýju en hjáleið er um Stapabraut og Njarðarbraut.

Auglýsing

læk

Auglýsing
Auglýsing

Fréttir

Auglýsing