Alvarlegt bílslys varð á fjórða tímanum í dag á Vesturlandsvegi á Kjalarnesi. Þetta kemur fram á vef Fréttablaðsins
Bifhjól skall framan á húsbíl með þeim afleiðingum að ökumaður og farþegi bifhjólsins létust. Ökumaður annars bifhjóls missti stjórn á hjóli sínu þegar áreksturinn varð og féll hann af því. Hann var fluttur á Landspítalann til aðhlynningar.
Nýlegt malbik er á vegarkafla á milli Grundarhverfis á Kjalarnesi og Hvalfjarðarganga, þar sem slysið varð, og var það nokkuð sleipt eftir rigningu að Ásgeirs Þórs Ásgeirssonar yfirlögregluþjóns.