Tveir heppnir miðahafar voru með 1. vinning í kvöld og skipta því vinningsupphæðinni á milli sín. Hvor vinningshafi fær rúmlega 5 milljónir en annar þeirra keypti miðann í Kjörbúðinni í Reykjahlíð og hinn miðinn er í áskrift.
Sex miðahafar voru með 2. vinning í Jóker og fá 100 þúsund krónur hver. Miðarnir voru keyptir í N1, Hafnargötu 86 í Reykjanesbæ, N1, Ægissíðu 102 í Reykjavík, Olís, Ánanaustum 10 í Reykjavík og þrír miðar eru í áskrift.
Heildarfjöldi vinningshafa var 6.577.