Auglýsing

Tveir miðahafa voru með 1. vinninginn og fá rúmlega 27,3 milljónir króna hvor

Tveir spilarar voru með 1. vinninginn í útdrætti vikunnar í Lottó og skipta því vinningsupphæðinni á milli sín. Hvor miðahafi fær rúmlega 27,3 milljónir króna í sinn hlut en miðarnir voru keyptir á Olís Varmahlíð og N1 Þingeyri. Þá voru sjö miðahafar með bónusvinninginn og skipta honum á milli sín, 116 þúsund krónur á hvern vinningshafa. Áskrifendur voru heppnir á laugardaginn en fjórir af sjö vinningshöfum bónusvinningsins voru í áskrift, aðrir miðar voru keyptir í Fjarðarkaupum, lotto.is og sá síðasti í Lottó appinu.

Sex miðahafar voru með 2. vinning í Jóker sem gefur 100 þúsund krónur á mann. Áskrifendur voru líka heppnir þar en helmingur miðahafa voru í áskrift, tveir miðanna voru keyptir í Lottó appinu og sá síðasti á lotto.is.

Auglýsing

læk

Auglýsing
Auglýsing

Fréttir

Auglýsing