Auglýsing

Tveir stálheppnir miðahafar voru með allar tölurnar réttar í Lottó í kvöld

Tveir stálheppnir miðahafar voru með allar tölurnar réttar í Lottó í kvöld og skipta því með sér 1. vinningnum. Hvor þeirra fær rúmlega 10,8 milljónir króna en annar miðanna var keyptur í Lottó appinu og hinn í Snælandi, Núpalind. Þá deila tveir miðahafar bónusvinningnum og fá rúmlega 260 þúsund krónur hvor í sinn hlut. Miðarnir voru báðir keyptir í gegnum Lottó appið.

Enginn var með 1. vinning í Jóker í kvöld en fimm miðahafar voru með 2. vinning og fá 100 þúsund krónur hver. Miðarnir voru keyptir í Söluskála Ólafsvík, á lotto.is og voru þrír miðahafar í áskrift.

Auglýsing

læk

Auglýsing
Auglýsing

Fréttir

Auglýsing