Þrír þjóðverjar skiptu með sér 2. vinningi í EuroJackpot útdrætti vikunnar og fær hver þeirra rétt tæplega 93 milljónir. Sjö miðahafar voru með 3. vinning og fær hver þeirra 14 milljónir í sinn hlut, fjórir miðanna voru keyptir í Þýskalandi, einn í Eistlandi, einn í Lettlandi og einn í Tékklandi.
Tveir voru með 2. vinning í Jóker og fá þeir 100 þúsund króna vinninga, annar miðinn var keyptur í Mini Market við Smiðjuveg í Kópavogi en hinn í N1 við Lækjargötu í Hafnarfirði