Enginn var með allar tölur réttar í útdrætti vikunnar í EuroJacpot, en heppinn Þjóðverji var einn með 2. vinning og hlýtur hann rúmar 271 milljón króna. Sex skiptu með sér 3. vinningi og fær hver þeirra rétt tæpar 16 milljónir króna í sinn hlut. Miðarnir voru keyptir í Slóveníu, Tékklandi, Þýskalandi, Danmörku og 2 í Noregi.
Tveir voru með 4 réttar Jókertölur í réttri röð og fá þeir 100 þúsund krónur í vinning hvor. Miðarnir voru keyptir í Fjarðarkaupum, Hólshrauni 1b í Hafnarfirði og N1, Hafnarstræti 2 á Ísafirði.