Nútíminn tók saman nokkur gömul og ný #Égrataút af Twitter! Sannkallaðir fimmaurar!
Scenario:
Sjón kemst að því að hann er pabbi Sögu GarðarsFyrirsögn fjölmiðla daginn eftir:
Sjón er sögu ríkari#égrataút— Atli Sveinn Jónsson (@atlij17) May 30, 2019
Í næsta þætti af Allir geta dansað verða allir dansarar að dansa kolefnisspor #égrataút
— Kristjón Daðason (@Kjoni) January 16, 2020
Hvað ef einhver ýtir á pásu í miðju flugi? #playair #égrataút
— Heppinn Norðmaður (@bergur86) November 5, 2019
Orginal Hatari eða framtíðar Hatari ? #12stig #égrataút #eurovison #hatari #tómiðheimtiralla pic.twitter.com/Jco3Nj2CCG
— Geirix (@geirix) May 18, 2019
Ein pæling. Ef einhver kaupir miða á Ed Sheeran tónleikana og stendur aftast, Sheeran þá eitthvað? #égrataút
— Heiðar Austmann (@haustmann) October 2, 2018
Er ekki frekar snemmt að vera að tilkynna þetta núna @nutiminn? Sjö ár er frekar langur tími og við vitum ekki hvort þau verða frábær. #égrataút pic.twitter.com/HbZHkL0Otc
— Hilmar Þór Norðfjörð (@hilmartor) April 26, 2018
Það eina sem ég fíla ekki við Lindt súkkulaði er hvað það er Lint.
— Kristinn Geir (@kiddigeir) April 17, 2018
Þegar maður spáir í því, eru ekki allir drykkir svaladrykkir ef maður drekkur þá úti á svölum? #égrataút #ásvalir
— Haukur Jónasson (@Swooper86) April 16, 2018
Var að semja aulabrandara:
Hvað sagði kindin við hina kindina?
-Að bera eða ekki bera, þar liggur efinn.#égrataút— Birgitta Sigursteins (@birgittasig) April 14, 2018
Fyrsta fb færsla ónefndrar útfararþjónustu innihélt eftirfarandi setningu: „Líkið við síðuna okkar!“ #5aur #égrataút
— Þorsteinn Mar (@Tmar78) August 30, 2017
Er á borðtennismóti hjá syni mínum og er tvisvar búin að standa upp og gera athugasemd við dómgæsluna. Dómarinn er 10 ára. #égrataút
— Heiða Kristín (@heidabest) September 24, 2016
hvað kallast hávært kartöflusalat?
meðlæti
með læti#égrataút— hugi (@macmahnon) August 30, 2016
Er ekki full mikið að það séu 900 Grillhús í Vestmannaeyjum ? #égrataút
— Andri Haraldsson (@AndriHar) August 28, 2016
Finnst magnað að fólk sem er að leita af öndum fari í andaglas. Ég fer bara alltaf niður á tjörn það sem er nóg af öndum! #egrataút
— Lárus Helgi Ólafsson (@Lallihelgi) December 10, 2015
Plötusala hlýtur að hafa fallið vegna þess að fólk lætur ekki plata sig lengur. #égrataút
— Lárus Helgi Ólafsson (@Lallihelgi) November 14, 2015
Málamyndahjónaband er þegar brúðhjón fara ekki í hefðbundna myndatöku eftir athöfnina heldur er máluð af þeim mynd. #égrataút
— Örn Úlfar Sævarsson (@ornulfar) October 21, 2015
Ég ætla í Bubble bath og hlusta á Michael Bublé. Er það þá ekki Bublé bath? #égrataút
— Gunnar Gylfason (@gunnigylfa) September 30, 2015
Vann Morrisson eða tapaði hann? #wbafc #égrataút
— Kari Freyr Doddason (@Doddason) August 23, 2015
seinustu orð mín áður en ég dey verða „ég verð ekki eldri“ #égrataút
— hugi (@macmahnon) May 3, 2015
Fór í lyfjapróf.
Féll.
Var að taka stera.
Hvernig stera?
Nú HIPSTERA! #égrataút— Stefán Gunnar (@stefangusi1) April 9, 2015