Mikill erill var hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu í nótt en um hundrað mál komu á borð hennar frá klukkan 17:00 til klukkan 05:00 í morgun. Þetta kemur fram í dagbók lögreglu.
Málin voru að ýmsu tagi og oftar en ekki snerust þau um fólk sem var undir áhrifum áfengis og/eða fíkniefna. Þá komu nokkur heimilisofbeldismál inn á borð lögreglu, líkamsárásir, hávaðakvartanir, aðstoð við fólk vegna ástands, slys og óhöpp.
Þá voru níu ökumenn teknir fyrir ölvunar og eða fíkniefnakstur. Alls voru tíu manns vistaðir í fangaklefum á áðurnefndu tímabili.