Auglýsing

Umhverfis- og auðlindaráðuneytið kallar eftir tilnefningum

Umhverfis- og auðlindaráðuneytið auglýsir eftir tilnefningum til verðlauna sem afhent verða á Degi íslenskrar náttúru. Annars vegar er um að ræða Fjölmiðlaverðlaun umhverfis- og auðlindaráðuneytisins og hins vegar Náttúruverndarviðurkenningu Sigríðar í Brattholti. Tilnefningarfrestur er til 20. ágúst næstkomandi.

Fjölmiðlaverðlaunum umhverfis- og auðlindaráðuneytisins er ætlað að hvetja til umfjöllunar um umhverfi og náttúru, hvort heldur er í því skyni að vekja athygli á einstakri náttúru landsins, benda á þær ógnir sem steðja að umhverfi og náttúru eða mikilvægi þess að vernda og verja umhverfi og náttúru til framtíðar.

Verðlaunin geta hlotið fjölmiðill, ritstjórn, blaða- eða fréttamaður, dagskrárgerðarfólk, ljósmyndari eða rithöfundur sem hefur skarað fram úr með umfjöllun sinni um umhverfismál og/eða íslenska náttúru undangengna tólf mánuði (tímabilið ágúst – ágúst). Til greina koma einstök verkefni eða heildarumfjöllun um náttúru og umhverfismál.

Þriggja manna dómnefnd skipuð fagfólki á sviði fjölmiðla velur vinningshafa úr innsendum tilnefningum en auk þess hefur dómnefnd svigrúm til að taka til skoðunar fjölmiðlaumfjöllun um umhverfi og náttúru utan tilnefninga.

Náttúruverndarviðurkenning Sigríðar í Brattholti

Náttúruverndarviðurkenning Sigríðar í Brattholti verður veitt einstaklingi sem hefur unnið markvert starf á sviði náttúruverndar. Sigríður Tómasdóttir, fæddist 24. febrúar 1871 í Brattholti. Sigríður var baráttukona og náttúruverndarsinni sem lagði mikið á sig í baráttu gegn virkjun Gullfoss. Hún var því brautryðjandi á sviði náttúruverndarmála hér á landi og hefur æ síðan verið íslenskum náttúruverndarsinnum fyrirmynd.

Óskað er eftir tilnefningum til beggja viðurkenninga í síðasta lagi 20. ágúst 2020.

Tilnefningar með rökstuðningi sendist umhverfis- og auðlindaráðuneytinu á netfangið postur@uar.is.

Nánari upplýsingar um Dag íslenskrar náttúru

Auglýsing

læk

Auglýsing
Auglýsing

Fréttir

Auglýsing