Unglingsstúlka hefur verið færð til vistunar á viðeigandi stofnun eftir að alvarlegt atvik varð í Kópavogi snemma í gærkvöldi.
Mikill viðbúnaður var hjá lögreglunni við Örvasali í Kópavogi þegar talið var að ókunnugur maður hefði veitt unglingspilti áverka með eggvopni. Var meðal annars notast við sporhunda og þyrlu Landhelgisgæslunnar við leitina. Stuttu síðar barst tilkynning þess efnis að leitinni hefði verið hætt og að málavextir væru ekki með þeim hætti sem talið var í fyrstu. Lá þá fyrir að áverkarnir væru af völdum stúlkunnar.
„Mikill viðbúnaður var vegna málsins, en í fyrstu var talið að ókunnugur maður hefði staðið að árásinni, en svo reyndist ekki vera. Líðan piltsins er eftir atvikum, en hann er ekki lífshættulega slasaður. Málið er unnið með aðkomu barnaverndaryfirvalda,“ segir í tilkynningu frá lögreglu.