Um tíu leytið í gærkvöldi fékk lögreglan á höfuðborgarsvæðinu tilkynningu um hóp ungmenna sem farið hefðu inn á lóð sundlaugar í leyfisleysi.
Þegar lögregla mætti á svæðið voru þau öll, nema eitt, komin ofan í laugina.
Í tilkynningu frá lögreglu var ekki tekið fram um hvaða sundlaug var að ræða en málið var afgreitt á lögreglustöð 3, sem hefur umsjón yfir Kópavogi og Breiðholti.