Upplýsingafundur Almannavarnadeildar ríkislögreglustjóra og embættis landlæknis fer fram klukkan 11:00 í dag. Á fundinum munu þeir Þórólfur Guðnason, sóttvarnalæknir og Rögnvaldur Ólafsson, aðstoðaryfirlögregluþjónn fara yfir stöðu mála varðandi framgang kórónuveirufaraldursins hér á landi.
Sigríður Dóra Magnúsdóttir, framkvæmdastjóri lækninga hjá Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins, verður gestur fundarins sem verður í beinni útsendingu á mbl.is