Hvorki 1. né hinn al-íslenski 3.vinningur gengu út að þessu sinni í Víkingalottó, en 2. vinningur sem var upp á rúmar 39,7 milljónir króna fór óskiptur til Finnlands.
Fimm miðahafar voru með fjórar réttar Jókertölur í réttri röð og hlýtur hver þeirra 100 þúsund krónur í vinning. Tveir miðanna voru keyptir í Appinu, einn er í áskrift og hinir tveir voru keyptir í Fjarðarkaupum í Hafnarfirði og Lukku Láka í Mosfellsbæ.