Útboðsþing SI sem haldið er í samstarfi við Mannvirki – félag verktaka og Félag vinnuvélaeigenda fer fram í beinu streymi á morgun miðvikudaginn 27. janúar kl. 09.00-10.30. Á þinginu kynna fulltrúar 11 opinberra aðila fyrirhugaðar verklegar framkvæmdir á árinu og fæst því gott yfirlit yfir helstu útboð ársins.
Fundarstjóri er Sigurður Hannesson, framkvæmdastjóri Samtaka iðnaðarins.
- Setning – Árni Sigurjónsson, formaður Samtaka iðnaðarins
- Reykjavíkurborg – Dagur B. Eggertsson, borgarstjóri
- Framkvæmdasýsla ríkisins – Guðrún Ingvarsdóttir, forstjóri
- Samtök sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu – Páll Björgvin Guðmundsson, framkvæmdastjóri
- Orka náttúrunnar – Hildigunnur Jónsdóttir, forstöðuman verkefnastofu
- Landsvirkjun – Gunnar Guðni Tómasson, framkvæmdastjóri framkvæmdasviðs
- Faxaflóahafnir – Inga Rut Hjaltadóttir, forstöðumaður tæknideildar
- Vegagerðin – Óskar Örn Jónsson, forstöðumaður framkvæmdadeildar
- Landsnet – Unnur Helga Kristjánsdóttir, forstöðumaður framkvæmda
- NLSH – Gunnar Svavarsson, framkvæmdastjóri
- Veitur – Katrín Karlsdóttir, teymisstjóri verkefnastjóra
- Isavia – Jón Kolbeinn Guðjónsson, deildarstjóri verkfræðideildar
Hlekkur á þingið:
https://vimeo.com/500878691/9b47427494