Auglýsing

Vegfarandi kom að látnum manni utan vegar

Vegfarandi á Sprengisandsleið kom að látnum manni utan vegar rétt fyrir hádegi í gær, skammt norðan við Vatnsfell á Suðurlandi.

Á Facebook síðu lögreglunnar á Suðurlandi kemur fram að líkið sé af erlendum ferðamanni og að ekkert á vettvangi bendi til saknæms athæfis. Af ummerkjum að ráða virðist maðurinn hafa verið einn á ferð.

Lögreglan á Suðurlandi fer með rannsókn málsins og segir að frekari upplýsingar verði ekki gefnar fyrr en staðfest hefur verið að aðstandendur hafi fengið upplýsingar um málið.

Auglýsing

læk

Auglýsing
Auglýsing

Fréttir

Auglýsing