Til stendur að opna útibú frá Flatey Pizza á Garðatorgi í byrjun maí og mun staðurinn vera til húsa þar sem veitingastaðurinn Nu Asian var áður. Þetta verður þeirra þriðja útíbú en fyrir eru staðirnir á Granda og Hlemmi mathöll.
Sindri Snær Jensson einn eigenda staðarins tilkynnti um þetta á Twitter í dag og munu Garðbæingar væntanlega gleðjast yfir fréttunum enda úrval veitingastaða ekki mikið í Garðabæ.
Flatey Pizza á Garðatorg (staðfest) https://t.co/StajlpzpI9
— Sindri Snær Jensson (@sindrijensson) February 19, 2020