Auglýsing

Víkingahátíð hefst á morgun

Víkingar á Vestfjörðum er félag fólks sem áhuga hefur á menningu, sögu og handverki landnámsfólksins. Félagið er staðsett á Þingeyri.

Á morgun hefst Víkingahátíð sem haldin er dagana 10-12.júlí í samvinnu við Rimmugýgi úr Hafnarfirði. Þetta kemur fram á bb.is

Á hátíðinni verður margt sem minnir á hina fornu víkinga svo sem bardagasýningar, eldsmíði, leikjasýningar, sögumenn, bogfimi, handverk, markaður, vikingaleikir og fleira. Aðgangur á hátíðina er ókeypis.

Samstarfsaðilar hátíðarinnar eru Kjarnafæði, Mjólkursamsalan, Íslenskt grænmeti, Ölgerðin, Simbahöllin, Smiðjan og Gamla bakaríið á Ísafirði og er aðgangur ókeypis, en óskað er eftir að þátttakendur skrá sig á slóðinni:
https://docs.google.com/forms/d/e/1FAIpQLSeFMlCL-gVmdguGE9DcbfVdz384ATavbbkTnIu9VldT1Gs0Sw/viewform?usp=sf_link

Auglýsing

læk

Auglýsing
Auglýsing

Fréttir

Auglýsing