World Class opnar nýja stöð á annarri hæð Kringlunnar í lok sumars. Er um að ræða fullbúinn tækjasal og útisal. Á heimasíðu World Class segir að á stöðinni verði einnig infrared heitur salur, hjólasalur, útisvæði með heitum og köldum pottum og fleira.
Líkamsræktarstöðin verður við innganginn á annarri hæð, þar sem Next var áður (nú síðast leikfangaverslun).
Ekki er fyrirhugað að loka stöðinni sem nú er við Kringluna, í bili. „Svarta boxið í Kringlunni verður áfram með WorldFit starfsemi hinumegin við götuna þar sem það verður í einhver ár í viðbót,“ segir á síðu World Class.