Auglýsing

15 ára unglingurinn reyndist vera tálbeita

Fyrir nokkrum dögum fór af stað mikil umræða í Facebookhópnum Stöndum Saman – Verndum Börnin, þar sem aðili var sakaður um að reyna að komast í samband við 15 ára dreng.

Nútíminn sagði frá málinu fyrr í vikunni og vakti málið mikla athygli.

Íslenskur Facebook hópur sem telur tugþúsundir manna opinberar meintan barnaníðing – Vilja finna heimilisfangið

Nú hefur hins vegar komið í ljós að um var að ræða tálbeitu, sem þóttist vera fædd árið 2009, en Nútíminn hefur fyrir því öruggar heimildir að aðilinn hafi verið eldri.

Nafn mannsins var birt opinberlega ásamt skjáskotum af skilaboðum sem voru sögð hafa verið send til unglings.

Þar voru birtar grófar athugasemdir, sem leiddu til þess að margir hópfélagar reyndu að afla upplýsinga um heimili hans.

Sífellt fleiri tálbeitur

Svo lítur út sem tálbeituaðferðir séu að verða algengari en eins og kom fram í frétt Nútímans telur Facebook hópurinn næstum 35 þúsund manns.

Nútíminn hringdi í lögregluna í Reykjavík til að spyrja hvort þetta væri að setja meiri pressu á lögregluna til að taka slík mál fastari tökum en lögregla vildi ekki tjá sig um málið að svo stöddu.

Nútíminn minnir á að lögreglan hefur ítrekað varað við að borgarar taki lögin í eigin hendur.

Auglýsing

læk

Auglýsing
Auglýsing

Fréttir

Auglýsing