Trump stjórnin hefur stöðvað greiðslur upp á 50 milljónir dollara sem hún segir að hafi átt að fara í smokkadreifingu á Gasa, samkvæmt yfirlýsingu frá Karoline Leavitt, talskonu Hvíta hússins.
Á sínum fyrsta opinbera fréttamannafundi á þriðjudag sagði Leavitt að Bandaríska ráðuneytið um skilvirkni stjórnvalda (DOGE) og Skrifstofa fjárlagastjórnar (OMB), hefðu uppgötvað greiðslur sem ætlaðar voru til kaupa og dreifingar á smokkum til Gasa.
„Þetta er fáránleg sóun á skattfé,“ sagði Leavitt og bætti við að ríkisstjórnin væri einbeitt í því að fara vel með skattpeninga bandarískra borgara.
„Við erum að stöðva þetta til að tryggja ábyrga fjármálastjórn.“
Féð gæti hafa farið til Hamas
Elon Musk, forstjóri X og DOGE, tjáði sig einnig um málið og dró í efa að fjármagnið hefði í raun verið ætlað til kaupa á smokkum.
„Mig grunar að stór hluti þessa fjár hefði endað í vösum Hamas, ekki í smokkadreifingu til íbúa,“ skrifaði Musk á X og bætti við:
„Já, jafnvel þó svo ólíklega vildi til að þetta hefði farið í smokka þá eigum við EKKI að eyða skattfé Bandaríkjamanna í smokkakaup fyrir útlendinga.“
Misjöfn viðbrögð við stöðvun smokkapeninganna
Eins undarlega og það kann að hljóma hefur málið ollið deilum í Bandaríkjunum.
Stuðningsmenn ákvörðunarinnar fagna því að Trump stjórnin sé að koma í veg fyrir það sem þeir telja óþarfa útgjöld til erlendra verkefna.
Andstæðingar saka hana hins vegar um að draga úr mannúðaraðstoð við íbúa Gasa.
🚨BREAKING: DOGE and OMB (Office of Management and Budget) found that the Biden admin was about to send $37M to the World Health Organization and $50M to fund condoms for Gaza. pic.twitter.com/u0gtiLQbwX
— Autism Capital 🧩 (@AutismCapital) January 28, 2025