Margir gerðu eflaust grín að framtíðarspám sem birtust í Tomorrow´s World þætti BBC á síðustu öld. Augljóslega var margt sem tæknimenn þáttarins gátu ómögulega vitað en samt tekst þeim stundum að spá rétt fyrir um tækni sem varð raunveruleg löngu síðar.
Í þessum þætti er t.d. nokkurs konar Apple úr sem er myndavélasími, úrið tengist gervihnöttum en búið er að skjóta upp slíkum hnöttum – svo internetið sé alls staðar. Kynnirinn minnist á heilsukubb sem gefur upplýsingar um heilsufarsvandamál en Elon Musk er að þróa slíka tækni sem verður brátt tilbúin.
Margt fleira áhugavert en fyndnast er líklega prentarinn sem hann ber í skjalatösku með þrívíddargleraugum. Líklega ekki margir sem ganga með 3D gleraugu og prentara í nútímanum.
Fyrir áhugasama þá er hér spá úr þættinum um skrifstofu framtíðarinnar.