Auglýsing

Fjölskyldufaðir með barnavagn skorinn á háls í Birmingham – Myndband ekki fyrir viðkvæma

Fjölskylda í gönguferð með ungabarn sitt í Birmingham varð fyrir fólskulegri árás er fjórir menn veittust að þeim.

Svo virðist sem faðirinn hafi stigið fram fyrir konu sína og barn þegar einn mannanna ræðst á hann með hníf og sker hann í hálsinn.

Strax byrjar að fossblæða úr manninum en fjölskyldan leggur á flótta við hlátur mannanna sem elta fjölskylduna og kalla fagnandi „neck shot, neck shot“ þar sem þeir fagna því að hann hafi hæft manninn í hálsinn með hnífnum.

Maðurinn hnígur fljótlega niður en lögregla og sjúkrabíll voru fljót á vettvang og náðist að bjarga lífi mannsins vegna þessa.

Fjórir hafa verið handteknir og er málið rannsakað sem morðtilraun.

Myndbandið má sjá hér fyrir neðan en Nútíminn varar við að það er ekki fyrir viðkvæma.

Auglýsing

læk

Auglýsing
Auglýsing

Fréttir

Auglýsing