Lögregla þurfti að hafa afskipti af manni sem var að veitast að fólki með hníf í miðborg Reykjavíkur. Enginn reyndist alvarlega slasaður en einn meintur gerandi er í haldi lögreglu þar sem honum verður haldið vegna rannsóknarhagsmuna.
Annar var of drukkinn til að valda rafskútunni sem hann ók á og datt og slasaðist. Ökumanni rafskútunnar var sleppt eftir blóðsýnatöku.
Þurfti lögregla að hafa afskipti af þremur leigubílum sem uppfylltu ekki gæða- og tæknikröfur og munu hljóta sekt fyrir. Ekki kemur fram fyrir hverja leigubílarnir starfa.
Einnig var tilkynnt um nokkra þjófnaði og húsbrot.