Fyrrverandi leyniþjónustumaður hjá bandaríska flughernum, Lenval Logan, segist hafa séð óþekktan fljúgandi hlut (UFO) á ferð sinni yfir Norður-Atlantshafið, milli Íslands og Skotlands.
Logan var einnig meðlimur UAP Task Force en það var deild undir stjórn bandaríska sjóhersins sem var stofnuð árið 2020 til að rannsaka óútskýrð loftfyrirbæri.
Hún hafði það hlutverk að greina og skrá slík fyrirbæri með áherslu á mögulegar þjóðaröryggisógnir.
„Ég hélt að nú myndi ég verða settur inn í eitthvað háleynilegt verkefni en enginn vissi hvað þetta var“
UAP Task Force var síðan breytt í All-domain Anomaly Resolution Office (AARO) árið 2022 en sú deild rannsakar óþekkt fyrirbrigði í lofti, sjó, geimi og á landi.
Í nýlegu viðtali hjá Joe Rogan rifjar Logan upp upplifun sína sem átti sér stað þegar hann var á leið í sitt fyrsta verkefni á vegum leyniþjónustunnar, en það var í Evrópu.
„Þetta hreyfðist með óútskýrðum hætti“
Samkvæmt Logan var hann um borð í flugvél á leið frá Fíladelfíu í Bandaríkjunum til Frankfurt í Þýskalandi, þegar hann kom auga á dularfullt fyrirbæri sem hreyfðist á undarlegan hátt í skýjunum.
„Þessi hlutur flaug í gegnum skýin með óútskýranlegum sveiflum – eins og það væri að leika sér,“ sagði hann og bætti við að það breytti stöðugt um lit á óútskýranlegan hátt.
Logan var nýlega búinn að fara úr viðhaldsdeild flughersins yfir í leyniþjónustu og var viss um að þetta væri eitthvað sem hann fengi skýringar á þegar hann kæmi til á áfangastað, enda hlyti þetta að vera einmitt það leyniþjónustan sérhæfði sig í.
„Ég hélt að nú myndi ég verða settur inn í eitthvað háleynilegt verkefni tengt því sem við sáum, en enginn vissi hvað þetta var.“
Fjöldi UFO sást yfir Belgíu
Eftir að hafa tjáð sig um reynslu sína innan hersins fékk hann engar skýringar á því sem hann hafði séð.
Nokkrum mánuðum síðar las Logan hins um hina svokölluðu belgísku UFO-bylgju, en hún átti sér stað frá 1989 til 1990 þar sem þúsundir manna sögðust hafa séð stór, þríhyrnd fljúgandi farartæki með undarlegum ljósum yfir Belgíu.
Belgíski herinn sendi orrustuþotur á eftir þeim en hlutirnir hreyfðust á ógnarhraða og undarlegan hátt sem ekki var hægt að útskýra með þeirri tækni sem við þekkjum.
Málið er eitt það þekktasta þegar kemur að fljúgandi furðuhlutum í sögu Evrópu þar sem fjöldi manna, þar á meðal lögreglan og belgíski herinn, greindu frá því að þrýhyrnd fljúgandi tæki hefðu sést yfir Belgíu.
„Þeir sendu F-16 orrustuþotur á eftir þessu, en í hvert skipti sem þær nálguðust, þá sveigðu þessir hlutir frá þeim eins og þeir væru að leika sér,“ sagði Logan
Radarupptökur staðfestu óútskýranlega tækni
Árið eftir, þegar Logan hafði starfað lengur innan leyniþjónustu hersins, bauðst honum tækifæri til að fljúga með breskum AWACS-eftirlitsflugvélum (Airborne Warning and Control System), en þeir hafa sama hlutverk og hann sinnti fyrir bandarísku leyniþjónustuna.
Þar spurði hann um fyrirbærið sem hann hafði séð yfir Norður-Atlantshafi.
„Þeir hlógu fyrst og spurðu: ‘Ertu ekki að djóka? Þú veist alveg hvað þetta er.’ En ég hafði ekki hugmynd.“
Þá fékk hann að sjá radarupptaku af evrópsku lofthelginni þar sem óþekkt flugfar hreyfðist á hraða sem engin þekkt loftför geta náð.
Þegar hann spurði hvaða flugfar þetta væri fékk hann aðeins eitt svar:
„Við héldum að þetta væru Bandaríkjamenn að leika sér.“
Logan segist hafa verið orðlaus eftir þetta samtal og telur að bandarísk yfirvöld gætu haft frekari upplýsingar sem ekki hafi enn verið gerðar opinberar.
Bandaríkiski herinn þegir enn
Þótt rannsóknir á óþekktum fljúgandi fyrirbærum hafi færst í aukana síðustu ár eru margar slíkar frásagnir enn án opinberra skýringa.
Bandaríski herinn hefur viðurkennt að hann hafi skráð tilfelli um nokkur óútskýrð loftfyrirbæri en engin staðfesting hefur verið gefin á uppruna þeirra.
Lenval Logan er enn sannfærður um að það sem hann sá á sínum tíma milli Íslands og Skotlands hafi verið eitthvað sem mannkynið hefur enn ekki tæknilega getu til að búa til.
Allan þáttinn er hægt að sjá hér fyrir neðan en til að fara beint í hlutann þar sem Logan talar um þessa reynslu er hægt að smella hér.