Veiga Grétarsdóttir er kajakræðari, transkona, umhverfissinni og baráttukona og var gestur Kiddu Svarfdal í hlaðvarpinu Fullorðins. Hún segir að það sé stór munur á því hvernig er komið fram við hana eftir að hún fór að lifa lífi sínu sem kona og því þegar hún lifði lífinu sem karl. „Ef ég þarf að hringja og panta varahluti þá þarf ég að nota gömlu röddina mína. Ef ég myndi „dressa mig upp“ og fara á bílaverkstæði þá fengi ég ekki þjónustu,“ segir Veiga.
Hún segir frá því líka í viðtalinu að hún þurfi oft að bíta í tunguna á sér í samskiptum við fyrrverandi konuna sína því „þær hafi oft grínast með það að hún hafi verið með stærri pung “ en Veiga þegar hún lifði sem karl.
Fáðu þér áskrift og sjáðu alla þætti á Brotkast í fullri lengd inni á brotkast.is/askrift