Auglýsing

Íslenskur Facebook hópur sem telur tugþúsundir manna opinberar meintan barnaníðing – Vilja finna heimilisfangið

Í Facebook hópnum Stöndum Saman – Verndum Börnin sem telur um 34 þúsund meðlimi ganga nú myndir af aðila sem virðist vera að reyna að setja sig í samband við dreng sem er sagður vera fæddur árið 2009 og er sagður 15 ára þegar skjáskotin eru tekin.

Skilaboðin virðast vera frá samskiptaforritinu Snapchat sem er vinsælt meðal aðila sem reyna að koma sér í samband við ólögráða einstaklinga, eins og kom fram í frétt Nútímans um hópana sem leiddu meinta níðinga í gildru.

Nafn mannsins kemur skýrt fram á myndunum þar hann virðist senda miður geðsleg skilaboð til drengsins sem gerir honum grein fyrir í skilaboðunum að hann sé eingöngu 15 ára gamall.

Nútíminn veit ekki hvort um er að ræða tálbeitu eða hvort einstaklingurinn sem fékk skilaboðin sé í raun 15 ára gamall en í upphafsinnleggi skrifar ónefndur aðili að verið sé að tala við 15 ára dreng.

Óhugnanleg skjáskot

Nútíminn varar viðkvæma við skilaboðunum sem birtast hér fyrir neðan en þau eru mörg hver mjög gróf.

Í skilaboðunum virðist maðurinn ákafur í að fá drenginn til sín og spyr meðal annars hvort hann „dópi“ og hvort hann sé með reynslu af eldri mönnum.

Þá segir hann drengnum, sem minnist á að hann sé í 10. bekk, að „beila á skólanum og koma að ríða.“

Hann segir einnig að hann sé of dópaður til að keyra og að drengurinn sé „svo að fara að kalla hann pabba á meðan hann ríður honum.“

Áður verið í fjölmiðlum

Í hópnum er minnst á að maðurinn hafi verið í fréttum fyrir aðra hluti og er meðal annars verið að leita eftir heimilisfangi mannsins en það er stutt síðan Nútíminn greindi frá hópum sem leita uppi meinta níðinga til að ganga í skrokk á þeim.

Íslensk ungmenni ganga í skrokk á meintum barnaníðingum og birta á samfélagsmiðlum

Meðlimir spyrja hvort ekki sé hægt að koma lögreglunni í málið meðan aðrir svara því til að lögreglan geri ekkert hvort sem er, og því sé best að fólk sjái sjálft um að réttlætinu sé framfylgt, en lögreglan hefur ítrekað sagt að almennir borgar eigi alls ekki að taka lögin í sínar hendur með slíkum hætti.

Auglýsing

læk

Auglýsing
Auglýsing

Fréttir

Auglýsing