Auglýsing

Landamæraráðgjafi Trump gefur lítið fyrir grátmyndband Selenu Gomes í nýrri yfirlýsingu

Tom Homan, landamæraráðgjafi Donalds Trump, hefur svarað myndbandi Selenu Gomez þar sem hún grætur yfir handtökum ICE (Immigration and Customs Enforcement) á ólöglegum innflytjendum í Bandaríkjunum.

Í myndbandinu, sem nú hefur verið eytt, sést Selena Gomez gráta vegna aðgerða ICE og segja:
„Allt mitt fólk er að verða fyrir árásum, börnin líka. Ég skil þetta ekki. Ég er svo miður mín, ég vildi að ég gæti gert eitthvað, en ég get það ekki. Ég veit ekki hvað ég á að gera. Ég skal reyna allt, ég lofa því.“

Homan: „Við gefum ekkert eftir“

Þegar Homan var spurður út í myndbandið í viðtali við Fox News hafnaði hann ásökunum Gomez og sagði að ICE væri aðeins að beina aðgerðum sínum gegn einstaklingum með á sakaskrá.

„Ef fólki líkar þetta ekki, þá verður það að bjóða sig fram til þings og breyta lögunum. Við ætlum að halda þessum aðgerðum áfram og gefum ekkert eftir,“ sagði Homan.

Hann bætti við: „Við ætlum að gera samfélagið okkar öruggara. Þetta er í þágu þjóðarinnar. Við ætlum að halda áfram. Engar afsakanir. Við höldum áfram.“

Stórtækar handtökur á ólöglegum innflytjendum

Samkvæmt New York Post handtók ICE 286 manns laugardaginn 24. janúar og 956 manns sunnudaginn 26. janúar.

Homan fullyrti að engum fjölskyldum hefði verið sundrað í þessum aðgerðum.

Í nýlegri yfirlýsingu sagði Homan einnig að brottvísanir myndu eiga sér stað á hverjum degi og að hver sá sem dvelur ólöglega í Bandaríkjunum eigi á hættu að vera vísað úr landi.

Harðari landamærastefna

Þessar aðgerðir sýna svo ekki verður um villst, harðari stefnu Bandaríkjastjórnar í innflytjendamálum undir stjórn Donald Trump.

Undanfarna mánuði hefur hann lagt áherslu á strangari innflytjendalög og fjölgun brottvísana.

Þrátt fyrir gagnrýni frá frægum einstaklingum eins og Selenu Gomez virðist ríkisstjórnin staðráðin í að halda stefnu sinni áfram.

„Við erum að gera þetta fyrir öryggi Bandaríkjanna,“ sagði Homan.

Myndbandið þar sem Selena grætur sárt er hægt að sjá í spilaranum hér fyrir neðan.

Auglýsing

læk

Auglýsing
Auglýsing

Fréttir

Auglýsing