Auglýsing

Ný auglýsing Play vekur gífurlega reiði – Sögð stútfull af kvenfyrirlitningu

Óhætt er að segja að nýjasta auglýsing flugfélagsins Play á Instagram hafi fallið í misjafnan jarðveg á miðlinum.

Margir hverjir segja auglýsinguna vera stútfulla af kvenfyrirlitningu og skref aftur á bak um tugi ára meðan aðrir koma og segja þetta stórkostlega markaðssetningu.

Enn aðrir segja svo að þeir muni eingöngu fljúga með Play héreftir en það er þó óhætt að segja að þegar þetta er skrifað séu ummælin flest neikvæð og tilkynningar um að fólk sé hætt að fylgja flugfélaginu og muni ekki fljúga með þeim aftur.

Auglýsingarnar eru reyndar tvær en þær eru bæði af karli og konu en auglýsingin um konuna er þó sú sem fær mun fleiri ummæli.

Nútíminn lætur lesendum eftir að dæma sjálfir um álit sitt á auglýsingunni en hana má sjá hér fyrir neðan.

 

 

View this post on Instagram

 

A post shared by PLAY airlines (@playairlines)

Auglýsing

læk

Auglýsing
Auglýsing

Fréttir

Auglýsing