Auglýsing

Rúta lenti utanvegar í Þrengslunum og bílar fastir úti í vegkanti

Það var röð svo langt sem augað eygði þegar lagt var af stað frá Reykjavík í átt að Hellisheiði og reyndist vegurinn lokaður eftir að vöruflutningabifreið hafði lent þvert á veginn en Þrengslin höfðu verið opnuð í staðinn.

Blaðamaður keyrði framhjá rútu sem hafði farið út af veginum á Þrengslunum.

Rútan var á leið til Reykjavíkur og engin slys virtust hafa orðið á fólki en blaðamður tilkynnti atvikið í 112 og lögregla lagði umsvifalaust af staðá vettvang.

Blaðamaður keyrði fram á bíl sem lent hafði utan vegar og með samvinnu og smá heppni var hægt að koma honum upp á veginn aftur.

Fjöldi bíla lent út af

Tveir bílar voru svo utan vegar fyrir utan Eyrarbakka er og er blaðamaður átti leið framhjá.

Þá hafði annar ætlað að koma þeim fyrri til aðstoðar en keyrt of langt út í kant og sokkið niður í snjóinn, sem var þungur og blautur.

Aðstæður voru í hættulegri kantinum enda glerhálka á veginum en þó tókst að koma þeim báðum upp á veginn aftur á endanum.

Blaðamður ætlaði vart að trúa eigin augum er hann keyrði fram á þann fjórða sem var utan vegar en við nánari athugun reyndist sá ekki fastur heldur var svo mikið mál að nauðsynlegt reyndist að stöðva för og sinna kalli náttúrunnar.

Engin slys höfðu verið tilkynnt á fólki.

Auglýsing

læk

Auglýsing
Auglýsing

Fréttir

Auglýsing