Það hefur varla farið framhjá neinum að Donald Trump er kominn í embætti forseta Bandaríkjanna og hefur strax hafist handa við að taka U-beygjur frá stefnumálum fyrri stjórnar.
Ein af þeim stefnum sem nú ert gjörbreytt er að nú viðurkenna Bandaríkin einungis tvö kyn, karl og konu.
Trump hefur meðal annars endurvakið þá stefnu að fangar skuli vistaðir í fangelsi sem hæfir líffræðilegu kyni þeirra en auk þess hefur hann lagt niður opinbera fjármögnun á kynleiðréttingaraðgerðum og sett lög sem miða að því að takmarka kynrænt sjálfræði.
Í ljósi þessara tíðinda hefur Nútíminn ákveðið að skoða stefnur íslenskra flokka og bera saman við nýjustu strauma frá Bandaríkjunum og við ætlum að byrja á Sjálfstæðisflokknum.
Sjálfstæðisflokkurinn
Sjálfstæðisflokkurinn hefur í mörg ár staðið fyrir stefnu sem, samkvæmt heimsíðu flokksins, miðar að því að tryggja réttindi hinsegin fólks í íslensku samfélagi.
Flokkurinn segist leggja áherslu á jafnrétti og einstaklingsfrelsi með það að markmiði að allir, óháð kynhneigð eða kynvitund, fái tækifæri til að lifa frjálsu og öruggu lífi.
Megináherslur í stefnu Sjálfstæðisflokksins:
1. Lög um kynrænt sjálfræði: Flokkurinn hefur stutt lagabreytingar sem tryggja hinsegin fólki rétt til að breyta kynskráningu sinni á einfaldan hátt og njóta jafnréttis fyrir lögum.
2. Fræðsla og fjölbreytni: Brýnt er að fræðsla um málefni hinsegin fólks verði efld og veitt á öllum skólastigum og að umfjöllun um þau verði bætt við menntastefnu. Ennfremur að ríki og sveitarfélög tryggi starfsfólki sínu aðgengi að hinseginfræðslu, þá sérstaklega þeim sem koma að því að veita þjónustu til hinsegin fólks.
3. Vernd gegn mismunun: Flokkurinn vinnur að því að tryggja að hinsegin fólk njóti verndar gegn mismunun á öllum sviðum samfélagsins.
4. Samvinna á alþjóðavettvangi: Sjálfstæðisflokkurinn styður alþjóðleg verkefni sem miða að því að bæta réttindi hinsegin fólks á heimsvísu, í samræmi við grunngildi einstaklingsfrelsis.
Samkvæmt heimasíðu flokksins eru þessar reglur flokksins byggðar á ályktun allsherjar- og menntamálanefndar flokksins og settar á á 44. landsfundi Sjálfstæðisflokksins 2022.
Hvað þarf að bæta?
Nútíminn sendi fyrirspurn á Sjálfstæðisflokkinn fyrir nokkru sem ekki hefur enn fengist svar við, en í fyrirspurninni voru eftirfarandi spurningar:
- Hvaða réttindi hinsegin fólks telur flokkurinn að þurfi að auka?
- Eru réttindi sem fólk, sem er ekki hinsegin, hefur umfram hinsegin fólk?
- Þegar flokkurinn segir að fólki eigi að vera frjálst að skilgreina kyn sitt að vild, er verið að vísa í að fólki sé frjálst að skilgreina sig sem karl eða konu, eða er flokkurinn að vísa í fleiri kyn? Og ef svo er, hvað telur flokkurinn að séu til mörg kyn?
- Hvað telur flokkurinn helst að skorti upp á í fræðslu um málefni hinsegin fólks?
- Hvaða hluta hinsegin málefna vill flokkurinn að verði bætt í menntastefnu?
- Mun hinseginfræðsla, sem flokkurinn vill að starfsfólk ríkis og sveitarfélaga hafi aðgang að, koma ofan á aðra fræðslu eða í stað hennar? (Ef það seinna, hvaða fræðsla má víkja til að bæta við hinseginfræðslu?)
Að lokum spurði Nútíminn hvort flokkurinn hefði í hyggju að endurskoða stefnu sína á næsta landsfundi í ljósi þess hvað er að eiga sér stað í Bandaríkjunum og algjörum viðsnúningi í slíkum efnum.
Ekki hafa enn borist svör við fyrirspurnum Nútímans en við munum birta þau þegar/ef þau berast.
Hér fyrir neðan má sjá skjáskot af stefnu flokksins í þessum málum.