Það eru eflaust margir metal hausarnir sem sitja eftir með sárt ennið eftir að tónleikum Manowar, sem áttu að fara fram í Hörpu 1.febrúar, var frestað.
Ástæðan gerist ekki mikið íslenskari, en hljómsveitin komst ekki tímanlega til landsins vegna veðurs.
Þetta staðfesti starfsfólk Hörpu í símtali við Nútímann en óljóst er hvenær tónleikarnir verða.
Uppselt var á tónleikana svo ljóst er að margir verða svekktir vegna þessa.