Auglýsing

Ungfrú Kansas benti á mann sem hún sagði vera geranda sinn meðan á keppninni stóð

Alexis Smith var keppandi í ungfrú Kansas fegurðarsamkeppninni og í einu dómaraviðtalinu sem fram fór á sviðinu var hún spurð hverju hún myndi vilja beita sér fyrir ef hún myndi vinna keppnina.

Smith sagði að hún myndi beita sér fyrir að uppræta ofbeldi í nánum samböndum og að enginn ætti að þurfa að lifa í ótta við maka sinn.

Smith varpaði svo sprengju í samtalið þegar hún bendir inn í mannfjöldann og segir að gerandi hennar sitja þarna í salnum en að hún ætlaði ekki að láta það stöðva sig.

Uppskar hún ærandi lófaklapp fyrir og endaði kvöldið á að vinna keppnina og mun keppa fyrir hönd Kansas í keppninni ungfrú Bandaríkin 2024.

Auglýsing

læk

Auglýsing
Auglýsing

Fréttir

Auglýsing