Auglýsing

Vandræði Vinnslustöðvarinnar vegna Hugins VE halda áfram

Huginn VE, uppsjávarskip í eigu Vinnslustöðvarinnar, strandaði undir Heimakletti þann 30.janúar eftir að vélarbilun kom upp.

Áhöfn skipsins varpaði akkeri til að reyna að stöðva skipið en það lenti engu að síður á sandbotni í innsiglingunni.

Að sögn Stefáns Jónssonar yfirlögregluþjóns í Vestmannaeyjum fór betur en á horfðist í fyrstu þar sem engar lagnir voru á þeim stað sem akkerið fór niður.

Sama skip hefur áður lent í vélarbilun sem olli því að akkeri þess skemmdi vatnslögn og ljósleiðara Vestmannaeyja eins og Nútíminn hefur áður fjallað um.

Skuldinni skellt á ranga menn: „Vinnslustöðin stóð sig ekki í viðhaldinu“

Hafnsögubátur og björgunarskipið Þór brugðust skjótt við og tókst með samstilltu átaki að losa skipið og draga það til hafnar.

Engan sakaði í atvikinu en unnið verður að frekari greiningu á orsökum bilunarinnar.

Áður komist í hann krappann

Þann 17.nóvember 2023 fór akkeri sama skips niður í botn með þeim afleiðingum að vatnslögn bæjarins og ljósleiðari til Vestmannaeyja stórskemmdust.

Það atvik hefði getað haft enn alvarlegri afleiðingar en snör viðbrögð skipverja eru sögð hafa komið í veg fyrir strand.

Þrátt fyrir að skemmdir hafi orðið á ljósleiðara og vatnsleiðslu bentu heimildarmenn Nútímans á að bilun í vélbúnaði, en ekki mannleg mistök, hafi verið orsök óhappsins.

„Skipstjóri, yfirstýrimaður og yfirvélstjóri sem höfðu fengið réttarstöðu sakborninga eru nú lausir allra mála“

Heimildarmenn Nútímans fullyrtu einnig að ábyrgðin lægi hjá Vinnslustöðinni vegna skorts á viðhaldi skipsins en engu að síður voru skipstjórinn og stýrimaðurinn gerðir ábyrgir fyrir óhappinu og þeir látnir taka poka sinn samstundis.

Það vekur spurningar um hvort útgerðin hafi nýtt sér óhappið til að segja mönnunum upp en heimildir Nútímans fullyrða að nýjir eigendur hafi viljað koma inn með sitt fólk og losna við þessa tilteknu menn sem fylgdu með í kaupum þegar Vinnslustöðinn keypti útgerðina Huginn ehf. í Vestmannaeyjum.

Á meðan Vinnslustöðin hafnaði öllum slíkum ásökunum eru margir Eyjamenn og sjómenn undrandi yfir því hvernig málið þróaðist.

Að reka tvo reynda menn án þess að bíða eftir niðurstöðu sjóprófa þótti að margra mati undarleg ákvörðun og annað sem vakti enn meiri grunsemdir er að ekki virðist hafa farið fram fullnægjandi rannsókn á ástandi skipsins fyrir óhappið þrátt fyrir ásakanir um að viðhaldi hafi verið verulega ábótavant.

Lögreglan fellir niður rannsókn gegn sjómönnunum

Í frétt RÚV frá 22.janúar 2025 er sagt frá því að lögreglan í Vestmannaeyjum hafi fellt niður rannsókn á máli skipverja Hugins VE vegna skemmda á neysluvatnsleiðslu og ljósleiðara við Vestmannaeyjahöfn í nóvember 2023.

Skipstjóri, yfirstýrimaður og yfirvélstjóri sem höfðu fengið réttarstöðu sakborninga eru nú lausir allra mála.

Þetta staðfesti lögreglan í Vestmannaeyjum í samtali við Nútímann.

Jóhann Pétursson, lögmaður yfirstýrimannsins, staðfestir niðurstöðuna og segir hana í samræmi við væntingar skjólstæðinga sinna.

Lögreglan taldi ekki að um refsiverða háttsemi hefði verið að ræða af hálfu skipverjanna.

Þrátt fyrir niðurstöðu sakamálarannsóknarinnar stendur til að höfða skaðabótamál á hendur útgerð skipsins, Vinnslustöðinni í Vestmannaeyjum.

Vestmannaeyjabær, HS Veitur og fleiri ætla að fara fram á um 1,5 milljarð króna í skaðabætur vegna skemmdanna.

Vinnslustöðin hefur boðist til að greiða 360 milljónir króna en ekki liggur fyrir hvort samkomulag náist um þá upphæð.

Auglýsing

læk

Auglýsing
Auglýsing

Fréttir

Auglýsing