Auglýsing

16 Dunkin’ Donuts staðir opna á Íslandi á næstu fimm árum

Fyrsti Dunkin’ Donuts staðurinn opnar í samstarfi við 10-11 síðar á árinu. Áætlað er að opna alls 16 staði hér á landi á næstu fimm árum.

 

Dunkin’ Donuts hefur skrifað undir sérleyfissamning við fyrirtækið Drangasker ehf., dótturfélag 10-11, um að hefja undirbúning að opnun Dunkin’ Donuts veitingastaða á Íslandi. Samningurinn gerir ráð fyrir opnun 16 Dunkin’ Donuts veitingastaða víða um land á næstu fimm árum. Flestir þeirra verða á höfuðborgarsvæðinu.

Sjá einnig: Dunkin Donuts vill opna á Íslandi

Paul Twohig, forstjóri Dunkin’ Donuts í Bandaríkjunum og Kanada, segir í tilkynningu að hann sé spenntur fyrir samstarfinu.

Nú þegar við höldum áfram með útbreiðslu Dunkin’ Donuts um Evrópu tilkynnum við með ánægju komu okkar til Íslands. Forsvarsmenn nýja sérleyfisins okkar á Íslandi, 10-11, búa yfir ríkri reynslu í heimi smásölu og viðskipta þar í landi.

Dunkin’ Donuts rekur 11.300 veitingastaði í 36 löndum víða um heim. Þar á meðal eru 170 staðir í Evrópu. Árni Pétur Jónsson, forstjóri 10-11, er einnig spenntur.

„Það er okkar tilfinning að hágæða matur og drykkur Dunkin’ Donuts eigi eftir að leggjast vel í viðskiptavini okkar víða um land og við hlökkum til að opna fyrsta veitingastaðinn á Íslandi síðar á árinu,“ segir hann.

Auglýsing

læk

Auglýsing
Auglýsing

Fréttir

Auglýsing