Þá er enn ein vikan liðin af þessu sumri og nú hljótum við að fara að sjá sólina á næstu dögum. Þangað til verðið þið að láta ykkur nægja að lesa það fyndnasta sem Íslendingar buðu upp á á samfélagsmiðlinum Twitter í vikunni.
#allirprumpa
Skil ekki fólk sem furðar sig á prumpulykt í margmenni, það meikar engan sens að prumpa ekki í margmenni.
-Það er aldrei neinn að fara að vita að þetta vast þú
-Þú losaðir um spennu og magaverk
-Græjaðir small talk content fyrir alla
-Og losnar við allt þurra og leiðilega liðið— Þórhildur (@thorhildure) July 13, 2018
Sturluð staðreynd. Espresso martini er í rauninni bara agalega smart vodka redbull.
— Hólmfríður Kristín (@holmfridurkr) July 13, 2018
Hver kannast ekki við þetta?
Mamma: Eruði búin að borða? Það er til cheerios, brauð til að rista…
Ég: Við reddum okkur.
M: …flatkökur, maískökur…
Ég: Við reddum okkur mamma..
M: Hafrakex.?
— Kristrún Emilía (@KristrunEmilia) July 14, 2018
Góð spurning
Hérna…húðfletti Kristján Loftsson mótmælanda og notar hann núna sem húfu? pic.twitter.com/8ObH6OzjtT
— ¾ Brynjar Birgisson (@brynjarb) July 12, 2018
Sá morgunn hefur aldrei komið í lífi mínu að ég hefði ekki viljað sofa lengur.
— Brynhildur Bollad. (@brynhildurbolla) July 12, 2018
Bókið manninn núna!
Er að trúbba fyrir lítið. Hér er lítið dæmi af því hvernig stemmarinn gæti verið!?? pic.twitter.com/IaIp3F8Zd9
— er patREKUR VIÐ? (@kuldaskraefa) July 9, 2018
Það ættu allir að followa Brynjar Níelsson
Hef verið að velta fyrir mér hvort ég geti bætt kjör mín með að setja kílómetramæli í golfbílinn
— Brynjar Níelsson (@BrynjarNielsson) July 13, 2018
Sturluð staðreynd
Skemmtilegt að TH hjá Guðna forseta stendur fyrir Tottenham Hotspur, þetta vissi ég ekki.
— Hjálmar Örn Jóhannsson (@hjammi) July 13, 2018
HAHA!
Hef misst 8-9 kíló síðan ég flutti til Lundar í Svíþjóð.
Það má því segja að ég sé léttur í Lund.— Gunnar (@gunnarmh) July 13, 2018
Trump verður lengi að jafna sig á þessu
This, @realDonaldTrump, is what Icelanders call ‘tekinn og étinn’ pic.twitter.com/yn0NEFlsxr
— Elísabet Brynjars (@betablokker_) July 13, 2018
Gott að eiga góða að
auglysing sem friðrik dór bað mig að gera fyrir sig þegar hann klárar námið set hana bara her friðrik minn pic.twitter.com/biS4TQWF5h
— Berglind Festival (@ergblind) July 13, 2018
Við styðjum þetta
þetta er algjört "leyfa sér" sumar. leyfa sér gott kaffi, leyfa sér súkkulaði með því, leyfa sér að taka stóran yfirdrátt og fara til útlanda í fjórar vikur
— Heiður Anna (@heiduranna) July 11, 2018
Sumarið hefur að minnsta kosti verið spennandi
Ömurleikinn venst merkilega vel. Nú er maður helst spenntur fyrir því hvaða tegund af rigningu verður í dag. Verður það dembiskúr, hvolfa, ofanfall, skumpa, skýfall, steypiskúr, úrhelli, sallaregn, smáýringur, svækja, úrferð eða bara smá úði? Spennó.
— Bragi Valdimar (@BragiValdimar) July 13, 2018
https://twitter.com/DNADORI/status/1017888039614459904
ef einhver gæti sent á mig myndband af snarklandi grilli og bjór hliðin á því svo opna grillið og sýnt grillandi kjötið og svo lokað því aftur þessa helgi þá væri þá frábært
— Starkaður Pétursson™ (@starkadurpet) July 13, 2018
Dónalegar furur
Þegar litla systir mín var yngri var hún alltaf svo sár út í furur því þær eru alltaf með "fokk merki" uppi á svona 40 örmum.
Enn í dag er það það eina sem ég sé: pic.twitter.com/g2FCtO6S4f
— Þórdís Ylfa (@thordis_ylfa) July 12, 2018