Vissir þú að Ragnhildur Steinunn og pabbi Einars Áskells eru bæði 36 ára? Nei, hélt ekki. Aldur er afstæður og það getur reynst erfitt að giska á aldur fólks.
Tómas Steindórsson birti áhugavert tíst á dögunum þar sem hann greindi frá því að grínistinn Björn Bragi Arnarsson og stjórnmálamaðurinn Smári McCarthy væri jafnaldrar.
hérna má sjá myndir af þeim birni braga skemmtikrafti og smára mccarthy alþingismanni, en þess má til gamans geta AÐ ÞEIR ERU JAFN GAMLIR pic.twitter.com/Y0CJbWd4ir
— Tómas (@tommisteindors) October 17, 2017
Í kjölfarið ákvað Nútíminn að taka saman lista yfir fólk sem er fætt sama ár án þess að nokkrun mann óraði fyrir því.